Wednesday, July 16, 2008

Þórisvatn og fleira.

Manni verður sjálfsagt seint hrósað fyrir að vera duglegur bloggari.
Ég, Erling bróðir og Karlott tengdasonur hans skruppum í Þórisvatn
að afla okkur í soðið eftir að Danni bróðir æsti upp í manni veiðibakteriuna
eftir að hann sjálfur var þar og gat nánast gengið þurrum fótum á vatninu svo mikið var af fiski og veiðin eftir því.
En því miður hafði hann veitt þá flesta því við fengum bara restarnar eða um 30 fiska sem er að sjálfsögðu fínasti afli.
Við vorum þarna í öskrandi roki og sandbyl en samt frábærlega gaman,
Ég kynntist þarna skemmtlegum dreng sem er með hreinræktaða vestfirska veiðdellu, það var gaman að sjá hve veiðiáhugin var ekta, því eins og við bræðurnir vorum að ræða þá er mikill munur á því að finnast gaman að veiða eða vera með veiðidellu sem eins og þarna var ósvikinn.

Sumarbústaðurinn á fitinni er óðum að taka á sig endanlega mynd, enda hafa margar klukkustundirnar farið í hann, en samt er alltaf jafn gaman að potast áfram með hann.
Þessi mynd var tekin um síðustu helgi eftir að ég kláraði þakið.
Hann er semsagt orðin þéttur og þolir orðið Íslensku rigninguna og rokið vonandi líka :)

Hafið það gott..........

2 comments:

Karlott said...

Ég segi bara þetta: Betri veiðifélaga er varla hægt að fá!

Hlynur, ég þakka Guði fyrir að þú hafir komið heim á klakann frá Svíþjóð og kveikt í veiðidellu tengdó... því hann kveikti víst í minni... svo þetta er nú allt, má segja, þér að þakka haha : )

Þetta var mögnuð ferð! Ég hafði mjög gaman af þessu... svona ekta veiði(alvöru)ferð!
Enda ekki nema fyrir hina hörðustu karla (vestfirska jötna og fljótshlíðar jaxla)!

Ef boð einhvern tímann kemur um að fara með þér í veiðiferð... hika ég ekki og slægst með í för.

Með ,,fiskarhälsning",
Karlott

Hrafnhildur said...

Ég samgleðst ykkur innilega (en öfundast í felum :) Ég elska að fara að veiða.
Svo hlakka ég til að koma á Fitina og kíkja á nýja kotið þitt.
kveðja úr Mos
Hrafnhildur